miðvikudagur

Tveggja vikna



Við klikkuðum alveg á myndatökunum þegar Snæfríður var í heimsókn svo pössuðum okkur á að taka nokkrar þegar Egill dvaldi hjá okkur. Alexander Emil er 2ja vikna á þessum myndum og búinn að ná fæðingarþyngdinni.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já gott að vita að þetta gengur alveg þrusuvel.. Ég er stollt af þér Linda mín..Ábyrgafull móðir...Bíddu bara í 6 ár og ekki láta hann komast í tæri við skæri... Auðun Óli klippti hárið á sjálfum sér um daginn og er hann eins og Steve í Knoxville...
Alexander Emil er algjör mús og fullorðins svipurinn leynir sér ekki. Á eftir að vera piltur sem veit hvað hann vill..
Gott að hann er búinn að ná fæðingarþyngdinni.

Koss og knússs
Vala
p.s Minn fer að vanta update á sl. 1/2 ár........You know what I mean...

Nafnlaus sagði...

ohh ég verð að kíkja í heimsókn! get ekki beðið! ég & pabbi ætlum að senda after sun & tennisspaða! he, he ,he! En svo reyni ég að kíkja, annars bíð ég bara spennt eftir að þið komið til mííín, heim þar sem þið eigið að vera- & hana nú! Hlakka til að sjá litla sætasta frænda minn & hann má hlakka til að hitta bestu frænku í heimi geimi ;)

milljón kossar & knús frá mér til ykkar .. mamma! híhí

- hrund besta systir & frænka :)

Nafnlaus sagði...

Rosalega er hann Alexander Emil orðin mannalegur og algjört krútt. Hlökkum ekkert smá til að hitta ykkur sem fyrst!!
Biðjum kærlega að heilsa
Kossar og Knús
Emil og Tóta