Skráir maður ekki fyrsta kvefið eins og fyrsta brosið?
Það meldast þá hér með að Alexander er með fyrstu kvefpestina sína. Hann hefur tekið þessu áfalli með mikilli karlmennsku og reiðir sig á að foreldrarnir haldi utan um sig á meðan þetta gengur yfir.
Fyrsta brosið? Það er umdeilanlegt. Við Stuart viljum bæði meina að hann sé farinn að skellihlæja en líklega er það óskhyggja, hann velur sér hinsvegar skemmtileg augnablik til að fá vind og gefur það okkur mikla ánægju.
föstudagur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
ég fylgist alltaf með litla frændanum mínum :) hvenær ætlar hann að koma til mín ?
Æji litla músin mín.
Ég vona að kvefið er að batna en þetta er víst nauðsynlegt til að styrkja þig. Láttu bara mömmu og pabba fara vel með þig.. Og passaðu þig vel. svo þér batni fljótt.
Koss og knús
Vala
Skrifa ummæli