
Alexander Emil er nú 16 vikna og vel yfir 9 kílóin. Honum er ráðlagt að halda sig við brjóstið enn um sinn þar sem hann er greinilega enn að þyngjast og stækka. Hann grípur vel hluti og er síhlæjandi en minna gaman finnst honum á maganum og hef ég ekki verið nógu dugleg við það. Skemmtilegra finnst honum að sitja og spái ég því að hann eigi eftir að skríða á rassinum eins og pabbi sinn.
Í þessu landi þurrmjólkur og barnagrauta við allt að fimm vikna er ég álitin furðufyrirbæri. Alexander sefur ekki alla nóttina án þess að toppa upp og skilur fólk ekkert í því að ég sé ekki farin að gefa drengnum súkkulaði enda sé það augljóst að drengurinn þarf að fara að borða... Það eru mismunandi siðir og venjur í landi hverju en ég er ánægð með að hafa treyst mér en ekki látið undan pressu þeirra sem finnst að ég eigi bara að gefa drengnum pela og fara út að skemmta mér.
6 ummæli:
Nei hann mun ekki þakka þér fyrir þetta, en það verður gleymt áður en hann kemst á þann aldur að vera meðvitaður um sig. Mikið skelfing hlýtur drengurinn að vera farinn að síga í, það er ekkert smávegis að halda á þessu, hann er algjör bolti. Eins gott að hann fái ekkert annað en móðurmjólkina, hann þarf ekkert top up af öðru. Og hvers vegna ættir þú að fara út að skemmta þér þegar þú varst eiginlega hætt því hvort eð er fyrir barn? uss
:)Myndardrengur Linda mín. Kíki nú á þig með borðið fljótlega og vertu líka velkomin til á Warrender Park
Ég get alveg skilið af hverju þær vilja að ég fari út að skemmta mér, þær hafa engan aðgang haft að drengnum án þess að ég sé á staðnum. Hér er þetta bara svona. Það eru þessi sífelldu undirskot með pela og mat sem fara í taugarnar á mér, í stað þess að taka þessu á jákvæðu nótunum - að drengurinn er að fá þá næringu sem hann þarf úr móðurmjólkinni.
Elsku Alexander Emil, þú ert sætastur í heimi!!!
Svo ég vitni nú í ömmu - "Það er svo myndarlegt þetta Hálsfólk" Hann kippir í kynið drengurinn, þetta er nú flest í stærri kantinum af mannlífsflórunni þetta lið, þó ég sé ekki sú lengsta þá er ég samt stórasystir :).. og hananú. Sætur var hann Linda mín en sætari er hann orðinn þessi frændi MINN!
Sorry gleymdi að kvitta undir Hálsfólkið!!!!
Skrifa ummæli