en litli erfðaprinsinn lætur sér fátt um finnast og heldur bara áfram að stækka og þroskast. Hann hefur ekki látið vigta sig nýlega en engin ástæða til að ætla annað en hann sé að stækka. Afrekin enda ekki þar heldur er hann alltaf að standa sig betur og betur á maganum og með fínhreyfingarnar sömuleiðis.
Hann er glaður að eðlisfari en virðist passa sig á að vera ekki að brosa að óþarfa til fólks sem hann þekkir ekki. Hann vaknar alltaf skellihlæjandi á morgnana og best þykir honum þegar hann skiptir um föt, betra þó að fara úr heldur en í. Ekkert er farið að bóla á tönnum þó hann slefi mikið.
miðvikudagur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
jæja þetta með myndavélarnar er að ganga ég er búin að týna minni, hef ekki græna glóru hvað varð um hana.
Skrifa ummæli