föstudagur

Og litli maðurinn uppgötvaði grátinn

Síðustu tveir dagar hafa verið erfiðir fyrir Alexander og held ég bara erfiðari fyrir okkur Stuart. Alexander stíflaðist alveg upp og fékk mjög slæman hósta. Hann gaf okkur nokkrar aríur sem svo næstum því orsökuðu hjónaskilnað, þvílíkt var stressið hjá okkur. Aldrei hefur barnið öskrað svona, ekki einu sinni þegar hann fæddist. Drengurinn er sem betur fer skárri, spriklar og brosir eins og ekkert hafi í skorist, er farinn að babbla á fullu og ég get svarið það að hann syngur með mér :)

2 ummæli:

Hedy María sagði...

Þú ert svo duglegur elsku strákurinn. Hann hefur nú ekki langt að sækja í gleðina :o)

Nafnlaus sagði...

Æji þú ert mikil mús.
Já segðu þið (sætustu strákarnir) geta gert okkur (fullorðnafólkið) alveg brjálað, en samt elskum við ykkur út í hið óendanlega... Búin að vera inni með Auðuni Óla í viku og var á barmi klikkunar. En auðvita tekur þetta allt enda og núna liggur Auðun Óli sofandi í rúminu og ég hef ekki séð jafn fallegan einstakling (þó hann hafi gleymt að þvo sér í framan) sem ég elska svo innilega af öllu mínu hjarta.. Þessar elskur.
kv Vala Ólöf