Þrautsegjan borgaði sig. Ég talaði við aðra hjúkku og fékk hæðarmælingu, hún athugaði hreyfigetuna og svo fékk ég afrit af gögnunum hans. Drengurinn er 70 cm og er það vel yfir 75 prósentin í bresku kúrfunni, hann er líklega meðalbarn á íslensku kúrfunni. Annars er það í fréttum að hann velti sér í fyrsta skipti áðan, þ.e. án þess að vera í rúminu að teygja sig í brjóstið. Hann var löngu búinn að læra að færa sig á hliðina og þaðan á magann en hafði aldrei látið á það reyna á gólfinu. Það er gaman að vera til, nú lætur hann í sér heyra, hvort sem það er verið að gráta eða skríkja af gleði.
laugardagur
Knúsað fyrir svefninn

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég held nú að 170 cm séu líka vel yfir kúrfu hér ;)
Mikið er þetta bráðþroska drengur!
wahhhahaaa
Hehe, já, það mætti segja mér að það væri mikið ofurbarn :)
Skrifa ummæli