sunnudagur

Eins árs

og engar myndir á leiðinni. Lappadraslið er að gefa upp öndina og þangað til þá erum við bara online í nokkrar mínútur í senn. Allt gengur vel, Alexander er farinn að labba vel með og lætur foreldrana óspart heyra það ef honum finnst gengið á sinn hlut. Hann stóð sig eins og hetja í Skotlandsferðinni, mikið er gaman að sjá hann leika sér með öðrum börnum.

Takk fyrir góðar kveðjur á afmælisdeginum hans, við setjum myndir inn um leið og við finnum leið til að laga lappann.

Engin ummæli: