Alexander er orðinn rúmlega 13 mánaða og slær í gegn daglega - ef ekki hjá foreldrunum þá hjá sjálfum sér. Hann steig sín fyrstu óstuddu spor fyrir nokkrum dögum en passar sig á að endurtaka ekki leikinn of oft og alls ekki ef hann er beðinn sérstaklega um það. Ekkert er óhullt fyrir önnum köfnum drengnum nú frekar en fyrri daginn enda kemst hann sífellt hraðar yfir. Hann skilur vel einfaldar setningar; Alexander borða banana, Alexander fara að sofa, gefa mömmu bókina etc.... og segir Allt búið á tveimur tungumálum :) Nýjasta æðið hjá honum er að horfa á mömmu búa til smoothie á morgnana, hann byrjar að brumma um leið og hann sér banana.
Nú bíðum við bara eftir að komast inní heilbrigðiskerfið svo við getum farið í mælingu.
Myndamálin eru öll i vinnslu, það koma myndir inn í þessari viku :)
fimmtudagur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli