sunnudagur

Alexander Emil er 14 mánaða í dag


og er alveg að komast á fartið. Hann labbar frá A til B en er ekki farinn að labba af stað bara útí bláinn en á ekki von á að það verði langt í að það gerist, hann fer æ hraðar yfir og verður öruggari og öruggari.
Helgin var stór hjá litla manninum, honum var boðið í skírn Eyvars Arnar á laugardeginum og á sunnudeginum fór hann í opið hús til fjölskyldunnar í Víðimelnum. Mikið gaman og mikið af börnum til að leika sér með. Hér að ofan er Alexander að virða fyrir sér dótið sem Kári er að leika sér að. Það er ekki svo mikill stærðarmunur á strákunum tveimur, Alexander er þó 7 mánuðum eldri en Kári :)

Engin ummæli: